Verkefnið snýst um Umhverfismál (Jugend denkt um.welt) og tilgangurinn er í fyrsta lagi að fá unglinga til að hugsa meir um umheiminn heldur en þeir gera í dag og besta aðferðin til þess er náttúrulega að fá þá til að vinna beint að umhverfismálum með því að láta þá sjálfa skoða, rannsaka og gagnrýna það sem hefur farið úrskeiðis og kemur til með að fara úrskeiðis ef við höldum svona áfram. Ætlunin er að fá unglinga í fjórum löndum, Frakklandi, Póllandi, Kroatiu og íslandi til að taka þátt í þessu verkefni. Ísland er eina landið þar sem það hefur ekki tekist að mynda hóp og það væri synd ef okkur tækist ekki að vera með.
Verkefnið sjálft fer þannig fram að unglinarnir eiga að finna sér verkefni sem er eða hefur verið á döfinni vegna umhverfisskemmda eða myndi hafa slæm áhrif á umhverfið. (T.d. virkjunarmál Íslendinga.) Unglinarnir eiga að safna saman gögnum og upplýsingum og síðan að búa til kvikmyndahandrit fyrir umhverfisauglýsingu. Í enda september, byrjun oktober kemur leikstjórinn Tomas Frick til Íslands (ef að það tekst að mynda hóp) og verður í þrjá daga til að leiðbeina og sýna unglingunum hvernig best er að standa að slíku handriti. Hann kæmi svo aftur einhverntíma á tímabilinu og yrði þá líka í þrjá daga. Að endingu verða öll handritin metin og það handrit sem sigrar verður notað til að gera Umhverfisauglýsingu sem væntanlega verður sýnd um allan heim. Bara að taka þátt í svona verkefni væri auglýsing fyrir unglinga landsins sem berjast á móti umhverfisskemdum í eigin landi og líka fyrir skólan sem stendur á bak við verkefnið og ef handritið tekst vel og sigrar, þess meir. Allir þátttakendur fara svo til Berlinar í byrjun næsta árs til að taka þátt í verðlauna eða kynningarhátíðinni.
Verkefnið er allt unnið í sjálfboðavinnu, það er að segja nemendur myndu þurfa að finna fyrirtæki og aðila sem væru tilbúnir að styrkja verkefnið t.d. Flugleiðir eða IcelandExpress fyrir flugferðirnar. Eins þyrfi að finna bústað fyrir leikstjórann annað hvort á hóteli eða heimahúsi. Allir þeir sem væru tilbúnir að styrkja verkefnið verða að sjálfsögðu nefndir í sambandi við og í myndinni. Þetta verkefni væri mjög mikil reynsluaukning fyrir þá nemendur sem taka þátt, bæði það að vinna að slíku verkefni og þýskulega séð væri þetta nátturulega toppurinn en líka að þurfa að taka þannig þátt í þessu að þurfa að útvega styrktaraðila því það æfir þau líka í því að umgangast málefnin og setja þau og tilgang þeirra rétt fram. Einnig komast nemendurnir í samband við nemendur í öðrum löndum og það er aldrei að vita hvað kemur út úr slíkum tengslum.
Þeir sem vilja frekari upplýsingar um málið, sendið tölvupóst til Ívars Ásgeirssonar á ivar.a@t-online.de